Gistihúsið Narfastöðum
Reykjadal, Þingeyjarsveit
650 Laugar
s: (354) 4643300
fax: (354) 4643319
farmhotel@farmhotel.is

Velkomin

Velkomin í Gistihúsið á Narfastöðum sem er staðsett við þjóðveg nr. 1 í Reykjadal í Þingeyjarsveit skammt fyrir sunnan þéttbýlið á Laugum. Aðalbygging gistihússins eru fyrrum fjárhús og hlaða sem breytt hefur verið í glæsilega en jafnframt notalega aðstöðu fyrir ferðafólk. Einnig er gisting í gamla íbúðarhúsinu á jörðinni sem gert hefur verið upp með þarfir ferðafólks í huga en húsið er timburhús, byggt í upphafi síðustu aldar. Yfir sumarið bjóðum við okkar rómaða kvöldverðarhlaðborð með úrvali fisk, kjöt og grænmetisrétta og morgunverðarhlaðborðið svíkur engann með heimabökuðu brauði og fjölbreyttu úrvali af morgunkorni, brauði, áleggi söfum og ávöxtum. Yfir vetrartímann eru máltíðir í boði eftir samkomulagi. Vær næstursvefn er lykilatriði á ferðalögum og því er áhersla löggð á góð rúm, hreinlæti og snyrtimennsku. Jafnframt er lögð áhersla á önnur þægindi s.s. sjónvarp með gervihnattarásum á herbergjum, þráðlaust internetssambands og aðgangur að almenningstölvu, rúmgóðar setustofur og lítill bar með úrvali af óáfengum og áfengum drykkjum. Ávallt er molakaffi og te í boði gestum að kostnaðarlausu og vingjarnlegt viðmót stjórnenda og starfsfólks fylgir að sjálfsögðu með í kaupbæti.





Gistihúsið á Narfastöðum er staðsett við þjóðveg nr. 1., fimm kílómetra sunnan við Þéttbýlið á Laugum. Staðsetningin er miðsvæðis með tilliti til skoðunarferða um helstu náttúruperlur Norð-Austurlands s.s. Mývatn... Lesa meira...



Land Narfastaða er u.þ.b. 17 ferkílómetrar og allt vel gróið fjölbreyttri flóru. Í landinu má finna fjallagrös og gamla Íslenska birkið og flestar gróðurtegundir þar á milli. Fuglalíf er mikið og milli 20 og 30 tegundir fugla verpa eggjum sínum á jörðinni.
Lesa meira...

eXTReMe Tracker